"Björkin er enn að vaxa"

"Ég er verulega sáttur við frammistöðu Bjarkar," sagði Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður Morgunblaðsins, þegar hann steig út úr Laugardalshöllinni í gærkvöldi eftir tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur.

Tónleikarnir voru þeir fyrstu í heimstónleikaferð Bjarkar til kynningar á nýrri breiðskífu, Volta, sem kemur út um heim allan hinn 7. maí. Þetta voru einnig fyrstu tónleikar Bjarkar hér á landi í sex ár.

"Uppstillingin á sviðinu hjá Björk var verulega flott og þessi fjölbreytti hópur sem er með henni spilaði sem einn maður. Þetta á eftir að verða stórkostleg tónleikaferð hjá henni, jarðarbúar geta átt von á góðu því Björkin er enn að vaxa," sagði Arnar og bætti við að það hefði gætt mikillar eftirvæntingar hjá áhorfendum, sem fylltu Höllina, enda fólk spennt að fá að heyra nýtt efni frá Björk. Eins og tilheyrir á góðum tónleikum var Björk klöppuð upp og uppklappslagið tileinkaði hún Grænlandi og Færeyjum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert