Lokaumferð minningarmóts í skák

Jóni Viktori nægir jafntefli í dag.
Jóni Viktori nægir jafntefli í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lokaumferð Minningarmótsins um Þráin Guðmundsson hefst á hádegi í dag í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni. Alþjóðlega meistaranum Jóni Viktori Gunnarssyni dugir jafntefli til þess að ná sínum fyrsta áfanga að stórmeistaratitli.

Umferðin hefst kl. 12 og er hægt að fylgjast með í beinni útsendingu á heimasíðu Skáksambandsins . Allir eru velkomnir á mótsstað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert