Sumir eru enn á nöglum

Nú er tími nagladekkjanna liðinn enda gera þau lítið gagn …
Nú er tími nagladekkjanna liðinn enda gera þau lítið gagn í góðri færð. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn í gær sem óku um á bílum á nagladekkjum en það er með öllu óheimilt á þessum árstíma. Nú þurfa ökumenn að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því getur trassaskapur komið við pyngjuna hjá þeim ökumönnum sem enn að treysta á naglana.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert