Páll Winkel skipaður aðstoðarríkislögreglustjóri

Páll E. Winkel.
Páll E. Winkel.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í dag Pál Egil Winkel í stöðu aðstoðarríkislögreglustjóra við embætti ríkislögreglustjóra, Grím Grímsson í stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóns við embætti ríkislögreglustjóra og Odd Árnason í stöðu yfirlögregluþjóns við embætti lögreglustjórans á Selfossi.

Þá skipaði dóms- og kirkjumálaráðherra ennfremur Benedikt Bogason héraðsdómara til setu í dómstólaráði til næstu fimm ára, frá og með 15. maí 2007 að telja, og Hjört O. Aðalsteinsson héraðsdómara sem varamann hans sama tímabil.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert