Stjórn OR samþykkti orkusölusamning vegna álvers í Helguvík

Tillaga THG arkítekta að ásýnd álvers Norðuráls í Helguvík.
Tillaga THG arkítekta að ásýnd álvers Norðuráls í Helguvík.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær orkusölusamning við Norðurál vegna fyrirhugaðs álvers fyrirtækisins í Helguvík. Samningurinn er gerður í kjölfar viljayfirlýsingar sem Orkuveitan og Hitaveita Suðurnesja skrifuðu sameiginlega undir ásamt Norðuráli 1. júní 2006. Í apríl sl. luku Norðurál og Hitaveita Suðurnesja gerð formlegs samnings um sín raforkuviðskipti í samræmi við viljayfirlýsinguna.

Fram kemur á heimasíðu Orkuveitunnar, að umhverfismat vegna fyrirhugaðra framkvæmda Norðuráls og Orkuveitunnar standi yfir en áformað sé að afla raforku til rekstursins af Hengilssvæðinu, þar sem Orkuveitan rekur Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun. Samkvæmt samningnum mun Orkuveitan sjá Norðuráli fyrir 100 MW afli frá því um áramótin 2010/2011.

Orkuveitan selur Norðuráli nú þegar raforku til reksturs álversins á Grundartanga. Fyrstu vélar hennar voru teknar í notkun í október síðastliðnum. Í næsta áfanga verður tekin í notkun 33 MW lágþrýstivél. Orka frá henni mun fara á almennan markað og mun þá um 30% raforkunnar frá Hellisheiði fara á almennan markað. Aflvélar númer fjögur og fimm verða teknar í notkun á næsta ári og framleiðsla á heitu vatni hefst síðan árið 2009. Virkjunin mun geta sinnt væntanlegri eftirspurn eftir heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2025, en fullgerð mun Hellisheiðarvirkjun framleiða 270-300 MW af rafmagni og varmastöð sem afkastar allt að 400 MW.

Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir á heimasíðu fyrirtækisins að með samningnum sé orkusala frá fyrirhuguðum virkjunum tryggð. Talsverðu máli skipti fyrir hagkvæmni hitaveitunnar að framleiða rafmagn samhliða heitavatnsframleiðslunni. Með þessari sölu sé tryggt, að ný varmastöð á Hellisheiði með tilheyrandi u.þ.b. 30 kílómetra hitaveitulögn til borgarinnar, muni ekki kalla á hækkun á heita vatninu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert