13 ára drengir kveiktu í timbri í Eyjum

Nokkrir 13 ára drengir í Vestmannaeyjum hafa viðurkennt að hafa kveikt í timbri í porti þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyjarbæjar á mánudag. Voru drengirnir að fikta við að kveikja í bensíni en misstu tök á eldinum sem magnaðist.

Ljóst þótti strax ljóst af ummerkjum að um íkveikju hefði verið að ræða. Hóf lögregla þegar rannsókn á brunanum og bárust böndin fljótlega að drengjunum sem sést höfðu við vettvang um það leyti sem eldurinn kviknaði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert