Dæmd fyrir hringastuld

Fertug kona var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær dæmd í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela fjórum gullhringum og armbandsúri úr klefa á sólbaðsstofu á Akureyri í febrúar sl. Játaði konan brot sitt en með því rauf hún skilorð dóms sem hún hlaut í maí á síðasta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert