Einn var fluttur til aðhlynningar á þegar mótorkrosshjól og fjórhjól rákust saman í nágrenni við Selfoss. Ökutækjunum var ekið á slóða meðfram þjóðveginum þegar mótorhjólið fór fram úr fjórhjólinu. Ökumaður hjólsins blindaðist í moldryki, með þeim afleiðingum að hjólin rákust saman. Ökumaður fjórhjólsins er aðeins 13 ára og því réttindalaus. Ökumaður mótorhjólsins hlaut minniháttar áverka.