Lýst eftir 17 ára gamalli stúlku

Kolbrún Sara Runólfsdóttir
Kolbrún Sara Runólfsdóttir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 17 ára gamalli stúlku, Kolbrúnu Söru Runólfsdóttur. Ekkert hefur sést til Kolbrúnar Söru síðan síðastliðinn þriðjudag. Hún er talin vera á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er Kolbrún Sara gjarnan svartklædd og hneigist til „Goth” tísku í fatnaði og útliti. Hún er um 168 cm. á hæð, frekar þétt vaxin, með millisítt dökkt eða svart hár, gleraugu og er í hvítum strigaskóm.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir eða verustað Kolbrúnar Söru eru vinsamlegast beðnir um hringja í síma 444-1000 eða 444-1100 hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka