Brotist inn í tvö fyrirtæki í Reykjavík

Brotist var inn í tvö fyrirtæki í Reykjavík í nótt og þaðan stolið upptökuvélum og farsímum. Þá var torfæruhjóli stolið úr geymslu í Hafnarfirði í nótt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu eru eftirlitsmyndavélar í báðum fyrirtækjunum og verða upptökur úr þeim skoðaðar með morgninum í von um vísbendingar um það hverjir voru þarna að verki.

Farsímunum var stolið úr fyrirtæki á Laugavegi en sjö til átta upptökuvélum var stolið úr verslun í austurhluta borgarinnar sem selur myndavélar og sjónvörp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert