Féll af vélhjóli og slasaðist

Vélhjólamaður slasaðist er hann féll af bifhjóli þar sem hann ók í Finnafirði, sem gengur inn af Bakkafirði. Að sögn lögreglunnar á Húsavík liggur ekki fyrir hversu alvarlega ökumaðurinn slasaðist en verið er að flytja manninn með sjúkraflugi frá Þórshöfn til Reykjavíkur.

Ökumaðurinn missti stjórn á ökutækinu í lausamöl og endaði utanvegar er hann var í beygju segir lögregla.

Vegfarendur sem áttu leið um svæðið höfðu samband við neyðarlínuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert