Norðfjarðargöng eru í burðarliðnum

Eftir Friðrik Ársælsson

fridrik@mbl.is

Drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðfjarðarvegi, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, hafa verið lögð fram. Til stendur að byggja jarðgöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar auk þess sem nýir vegir verða lagðir beggja vegna gangamunnanna. Framkvæmdin spannar um 16 km langan kafla; nær frá Norðfjarðarvegi, sunnan Eskifjarðar, að Norðfjarðarvegi, norðan Norðfjarðarár í Norðfirði.

Mikil samgöngubót

Í dag liggur vegurinn á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar frá Hátúni á Eskifirði, upp á Oddsskarð og gegnum Oddsskarðsgöng, að Kirkjubólsvegi á Norðfirði. Göngin um Oddsskarð hafa löngum sætt harðri gagnrýni Austfirðinga, en göngin eru 640 metra löng, einbreið með tveimur útskotum til mætinga. Þau liggja 626 metra yfir sjávarmáli og teppist leiðin oft á veturna.

Að sögn starfsmanna Vegagerðarinnar munu hin nýju göng valda straumhvörfum í samgöngumálum á svæðinu. Göngin eru um 6 til 6,5 km löng og liggja þau í mun minni hæð en Oddsskarðsgöng; gert er ráð fyrir að farið sé inn í göngin við Eskifjörð í um 15 metra hæð yfir sjávarmáli, í gegnum Hólafjall og komið út um þau í 70 metra hæð í Fannadal. Sitt hvorum megin við göngin eru tveir tengivegir. Vegurinn Eskifjarðarmegin er um 2 km langur en 7,5 km langur er vegurinn Norðfjarðarmegin.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert