Lögreglan á Blönduósi með sérstakt fíkniefnaeftirlit

Lögreglan á Blönduósi hefur haft sérstakt eftirlit með fíkniefnaneytendum og fíkniefnasölum dagana fyrir verslunarmannahelgina. Síðastliðna nótt komu upp fjögur fíkniefnamál í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi þar sem ungir menn á tvítugs- og þrítugsaldri voru handteknir með fíkniefni við eftirlit lögreglunnar. Allir voru þeir með lítilræði til eigin neyslu og var þeim sleppt eftir yfirheyrslur.

Í þessum málum var lagt hald á amfetamín og hass. Þá var einn þessara manna einnig kærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

Lögreglan á Blönduósi naut aðstoðar fíkniefnalögreglumanna á vegum ríkislögreglustjórans við rannsókn og uppljóstrun þessara mála. Einnig voru notaðir fíkniefnahundar lögreglunnar á Blönduósi og tollstjórans í Reykjavík.

Í dag voru tveir menn handteknir eftir að hafa verið stöðvaðir vegna hraðaksturs. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar er jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Voru mennirnir færðir á lögreglustöðina á Blönduósi þar sem leitað var í bifreið þeirra. Við leitina fannst þó nokkurt magn fíkniefna sem talið er að ætlað hafi verið til sölu á Norðurlandi sem og á Austfjörðum.

Jafnfram fannst þýfi í bifreiðinni sem er úr innbroti á Selfossi. Annar mannanna er enn í haldi lögreglunnar á Blönduósi en hinum hefur verið sleppt enda er ljóst að hann tengist málinu ekki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert