Sprengjum eytt í Hvalfirði
Sprengjueyðingaræfingin Northern Challenge hófst 28. ágúst sl. og stendur hún út þessa viku en það er Landhelgisgæslan sem skipuleggur æfinguna með styrk frá Atlantshafsbandalaginu (NATO). Sprengjusérfræðingar eru hingað komnir víða að úr heiminum til að taka þátt í æfingunni, en í dag fengu fjölmiðlar að fylgjast með með störfum danskra og norskra hermanna í Hvalfirði.
Undirbúningur fyrir æfinguna hefur staðið yfir í eitt ár og er þetta í sjöunda sinn sem þessi æfing er haldin hér á landi. Fjöldi embættismanna frá NATO, fylgdist með æfingunni í dag.
Georg Lárusson, forstjóri LHG, segir æfingar sem þessar hafa mikla þýðingu fyrir starfsmenn Gæslunnar. Hann segir að með þessu kynnist Gæslan því sem sé að gerast í löndunum í kring, hvernig menn vinna og hvað beri að varast. „Við þurfum að vera viðbúin á þessu sviði eins og á öðrum [...] Það er nauðsynlegt fyrir okkur að eiga þessa þekkingu og eiga mannskap sem hefur þjálfun í að fást við svona mál.“
Nokkur bið var eftir norskum sprengjusérfræðingum í Hvalfjörðinn sem áttu víst í smávægilegum örðugleikum með að rata um íslenska vegakerfið. Þeir komust hinsvegar á leiðarenda heilir á húfi og héldu stutta sýnikennslu hvernig þeir beita sérstöku vélmenni til þess að finna og eyða sprengjum.
Æfingin fer jafnframt fram innan og við nýja öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli.
Sprengjusérfræðingarnir sem taka þátt í æfingunni hafa starfað víða um heim, t.d. í Írak og Afganistan.
Innlent »
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 16. október 2006, Innlent Vel heppnuð æfing sérsveita í Hvalfirði
- Mánudagur, 27. nóvember 2006, Innlent Kajak-ræðari sem leitað var að í gærkvöldi fannst látinn í nótt
- Mánudagur, 13. ágúst 2007, Innlent Loftvarnir og aðgerðir gegn hryðjuverkum æfðar á Norðurvíkingnum
- Fimmtudagur, 30. ágúst 2007, Innlent NATO-stöðin í Hvalfirði til sölu
- Föstudagur, 29. ágúst 2008, Innlent Þór í öruggt lægi
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































