Grænt net til verndar náttúrunni

Græna netið leggur áherslu á umhverfismál.
Græna netið leggur áherslu á umhverfismál. mbl.is/RAX

Ný samtök umhverfis- og náttúruverndarmanna voru stofnuð í tengslum við Samfylkinguna í dag. Samtökin heita Græna netið – félag jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina, og er þeim bæði ætlað að vera vettvangur umræðna og stefnumótunar og að veita forystumönnum flokksins í þessum málaflokkum samráð, hvatningu og aðhald.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að formaður Græna netsins hafi verið kjörinn Mörður Árnason og stjórnarmenn ásamt honum eru Dofri Hermannsson, Helga Rakel Guðrúnardóttir, Katrín Theodórsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir (varam.), Sigurður Ásbjörnsson og Sigrún Pálsdóttir (varam.)

Ályktun fundarins:
„Í ályktun frá stofnfundinum er fagnað umhverfisáherslum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Stjórnin er jafnframt hvött til að afstýra áformum Landsvirkjunar um miðlunarvirkjanir í neðrihluta Þjórsár og gefa skýrt til kynna að engar eignarnámsheimildir verði veittar í því skyni. Þá skorar fundurinn á stjórnvöld að meta umhverfisleg, hagræn og samfélagsleg áhrif af fyrirhuguðu álveri í Helguvík og tengdum framkvæmdum með heildstæðum hætti, og beinir því til nýs meirihluta í Reykjavík að sjónarmið náttúru- og umherfisverndar komi ríkulega við sögu við endurskoðun á stefnu Orkuveitunnar.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert