Fannst í felum með búðarkassa

Einn maður er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að hann fannst í felum skammt frá söluturni í Hafnarfirði sem tilkynnt hafði verið að brotist hafði verið inn í um klukkan fimm í nótt. Við hlið mannsins sem er á tvítugsaldri fannst sjóðsvél úr söluturninum. Að sögn lögreglu hefur þessi maður áður verið í vörslu hennar.

Maðurinn bíður nú þess að rannsóknardeildir lögreglunnar mæti til starfa og taki mál hans til meðferðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert