Félögum í Vítisenglum neitað um landgöngu

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Árni Sæberg

Íslensk lögregluyfirvöld hafa í dag synjað sjö norrænum félögum í vélhjólasamtökunum Hell’s Angels (Vítisenglum) um leyfi til landgöngu. Fólkið, sem kom hingað til lands með flugi frá Noregi og Danmörku, hugðist sækja veislu, sem vélhjólaklúbburinn Fafner MC-Iceland hafði boðað til í miðborg Reykjavíkur um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Fram kemur að leiðbeiningarskyldu útlendingalaga um heimildir viðkomandi til að leita sér aðstoðar lögmanns hafi verið gætt, en að umræddir aðilar hafi til þessa kosið að nýta sér ekki þann rétt.

Þá segir að aðgerð lögregluyfirvalda vegna komu norrænna félaga í Vítisenglum hingað til lands sé ekki lokið. Fylgst verði með komuflugi til landsins um helgina sem og fyrirhuguðu samkvæmi Fafner-MC Iceland. Embætti ríkislögreglustjóra hefur yfirstjórn aðgerðarinnar, sem er viðamikil. Framkvæmd aðgerðarinnar til þessa hefur verið í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum auk þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og starfsmenn frá embætti ríkislögreglustjórans taka einnig þátt í henni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert