Heilsustefna í stað forvarna

„Heilbrigðiskerfið þarf að auka sjálfstæði notenda þess með því að treysta á ábyrgð þeirra fyrir eigin heilsu. Slíkt traust endurspeglar sanna þjónustu og virðingu fyrir fólki, auk þess sem slíkt traust færir notendum vald sem virkar batahvetjandi.“

Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, í ræðu sem hann flutti á ráðstefnu Samtakanna 78 um lýðheilsu í dag.

Ráðherra sagðist líta á forvarnir og heilsueflingu sem tvær hliðar á sama peningi. Sagðist hann kjósa að nota hugtakið heilsuefling yfir hvort tveggja þar sem það væri jákvæðara og endurspeglaði betur þá vinnu í stefnumótun í heilsueflingu sem hann hefði hrundið af stað í heilbrigðisráðuneytinu, en þá vinnu leiða Inga Dóra Sigfúsdóttir og Héðinn Unnsteinsson. „Færa þarf áhersluna í auknum mæli yfir á umræðu um heilbrigði og þá þætti sem stuðla að því, í stað þess að horfa fyrst til afleiðinga vanheilsu,“ sagði Guðlaugur Þór meðal annars.

Á ráðstefnunni kynnti Guðlaugur Þór niðurstöður nýrrar rannsóknar frá Rannsóknum & greiningu þar sem könnuð var líkamleg og andleg heilsa 10 þúsund íslenskra framhaldsskólanema. Sagði ráðherra niðurstöðurnar gefa til kynna að huga þyrfti sérstaklega að samkynhneigðum þegar kæmi að lýðheilsumálum.

Þegar spurt var um líkamlega heilsu svöruðu 76,2% gagnkynhneigðra að hún væri góð eða mjög góð, en 64,3% samkynhneigðra töldu svo vera.

Þegar spurt var um andlega heilsu svöruðu 79,1% gagnkynhneigðra að hún væri góð eða mjög góð, en aðeins 63,3% samkynhneigðra sögðu svo vera.

Þegar spurt var hversu oft á sl. 12 mánuðum ungmennin hefðu leitað til geðlæknis eða sálfræðings sögðust tvöfalt fleiri samkynhneigðir hafa leitað sér aðstoðar en gagnkynhneigðir. Alls 29,6% meðal samkynhneigðra en 14,6% meðal gagnkynhneigðra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert