Schengen-svæðið stækkar 1. desember

Ráðherrar Schengen-ríkjanna staðfestu á fundi í dag, að innra landamæraeftirliti yrði hætt á sjó og landi í níu af hinum nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins í desember og á flugvöllum í mars 2008. Við þessa stækkun nær Schengen-svæðið til 3,6 milljón ferkílómetra.

Eistland, Lettland, Litháen, Malta, Pólland, Slóvenía, Slóvakía, Tékkland og Ungverjaland fá aðild að Schengen í desember. Þá hefur aðild Sviss að Schengen verið samþykkt en enn á eftir að fullgilda samninginn í þremur aðildarríkjum Evrópusambandsins, Búlgaríu, Kýpur og Rúmeníu. Bretland á aðeins aðild að þeim þætti Schengen-samstarfsins sem lýtur að samstarfi á sviði lög- og réttargæslu. Írland getur með eigin ákvörðun gerst aðili að samstarfinu á sama hátt og Bretland.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, sat ráðherrafund Schengen-ríkjanna í Brussel í dag. Hann ræddi í tengslum við fundinn við Franco Frattini, varaforseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og framkvæmdastjóra innanríkis- og dómsmála hjá framkvæmdastjórninni.

Í byrjun næsta árs stefna Björn og Frattini að því að hittast til að ræða um stöðu Íslands í Evrópusamstarfinu hvað varðar lög- og réttargæslu í ljósi hins nýja stofnsamnings ESB, sem kenndur er við Lissabon. Þá verður einnig rætt um aðild Íslands að framkvæmd tillagna um nýjar aðgerðir í baráttunni gegn hryðjuverkjum, sem Frattini kynnti í gær, auk þess aðild Íslands að samstarfi evrópskra lögregluliða, sem kynnt hefur verið í svonefndum Prüm-samningi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert