Alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut

Frá slysstað.
Frá slysstað. mbl.is/Július

Alvarlegt umferðarslys varð á fimmta tímanum á Reykjanesbraut á móts við álverið í Straumsvík. Jeppi og lítill sendibíll munu hafa rekist saman, þrír slösuðust þar af tveir alvarlega lögregla hefur lokað umferðinni í báðar áttir. Ekki er vitað um tildrög slyssins en mikil hálka mun vera á staðnum.

Tilkynning um slysið barst lögreglu skömmu fyrir klukkan 17 og búið er að loka umferð um veginn í báðar áttir. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti að beita klippum til ná fólki út úr bílunum.

Lögreglan biður ökumenn um að sýna biðlund og að virða lokunina á Reykjanesbrautinni. Eitthvað mun vera hægt að beina bílum um hjáleið en umferð gengur ákaflega hægt 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert