Frystir á fjallvegum um vestanvert landið í kvöld

mbl.is/Ómar

Spáð er frosti á fjallvegum um vestanvert landið í kvöld, þ.m.t. á Hellisheiði og Holtavörðuheiði, og þar er jafnfram spáð dimmum éljum, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Austan til á landinu kólnar niður fyrir frostmark á fjallvegum í nótt.

Veðurstofan gerir ráð fyrir að vindur snúist til SV-áttar í kvöld, en áfram verður óveður um vestanvert landið. Áfram verður mjög byljótt á norðanverðu Snæfellsnesi fram yfir kvöldmatarleytið en eftir það jafnari vindur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert