Vatnsleki í verslun IKEA

Vatn hefur lekið inn í verslun IKEA í Garðabæ.
Vatn hefur lekið inn í verslun IKEA í Garðabæ. mbl.is/Eyþór

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnir nú fjölda útkalla vegna vatnsleka bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Slökkviliðsmenn eru t.d. komnir í verslun IKEA í Garðabæ þar sem vatn hefur lekið inn í verslunina af þakinu. Talið er að niðurfall þar hafi lokast með fyrrgreindum afleiðingum.

Ekki liggur fyrir með tjón í verslunni á þessari stundu.  

Þá hefur vatn lekið inn í Egilshöll í Grafarvogi en að sögn slökkviliðs er tjón talið vera minniháttar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert