Ný leigubílastæði í miðborginni

Á vegum Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar hefur verið lokið við gerð leigubílastæða neðst á Hverfisgötunni á móts við Arnarhól. Leigubílastæðin í Lækjargötunni, gengt Iðu, verða áfram í notkun. 

Aðstaða leigubíla var áður handan við gatnamótin við enda Hafnarstrætis. Stæðið er merkt með skilti við vegbrún en merkingar á götuna sjálfa verða unnar þegar veður leyfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert