Nýtt skip, Dala-Rafn VE 508, kom í dag til Vestmannaeyja frá Póllandi þar sem skipið var smíðað. Nýja skipið kemur í stað annars skips með sama nafni. Það eru hjónin Inga Eymundsdóttir og Þórður Rafn Sigurðsson sem eiga Dala-Rafn en sonur þeirra, Eyþór Þórðarson, verður skipstjóri.
Þetta er sjötta nýja skipið, sem kemur til Vestmannaeyja á þessu ári. Þá er þetta fimmta skipið, sem ber nafnið Dala-Rafn.