Þrettándabrennur á höfuðborgarsvæðinu

Eftir mikið óveður og ofsa í veðri á gamlárskvöld var …
Eftir mikið óveður og ofsa í veðri á gamlárskvöld var mörgum brennum frestað. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gefið út leyfi fyrir sjö brennum á morgun, þrettándanum en þau leyfi verða endurskoðuð með tilliti til veðurs á morgun.

Brennurnar verða:

Á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi kl. 17.

Á Tjarnarvöllum Hafnarfirði kl. 18.

Í Gufuneslandi kl. 17.

Á Ægissíðu í Reykjavík kl. 17.

Við Reynisvatn austan Sæmundarskóla kl. 18.

Á bökkum Gestshúss á Álftanesi kl. 20.30.

Við hesthúsin í Holtahverfi í Mosfellsbæ kl. 20.30. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka