Ástþór býðst til að kosta kosningar

Ástþór var með 40 milljónirnar á borði fyrir framan sig …
Ástþór var með 40 milljónirnar á borði fyrir framan sig á blaðamannafundinum í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Ástþór Magnússon hefur boðist til að leggja fram 40 milljónir króna í reiðufé til að kosta forsetakosningar. Ástþór sagði þetta á blaðamannafundi sem hann boðaði til í dag.

Hvatti hann þjóðina til að finna góða frambjóðendur þannig að lýðræðislegar kosningar geti farið fram. Hann neitaði hins vegar að svara því hvort hann hygðist bjóða sig fram sjálfur.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert