Hreystimenni á Höfn

Hressir strákar í Hafnarskóla.
Hressir strákar í Hafnarskóla. Sigurður Mar Halldórsson

Í Hafnarskóla á Höfn í Hornafirði eru mörg hreystimenni og í morgun buðu þeir þorra velkominn í garð með hefðbundnum hætti. Strákarnir hlupu í kring um skólann berleggjaðir og sumir berfættir og berir að ofan. Sumir fóru úr annarri buxnaskálminni og drógu hana á eftir sér að fornum sið en flestir voru þó á brókum. Þessi siður hefur verið við lýði í Hafnarskóla á bóndadaginn undanfarin ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert