Skrílslæti í Kringlunni

Öryggisverðir báðu lögregluna um aðstoð vegna skrílsláta í Kringlunni í …
Öryggisverðir báðu lögregluna um aðstoð vegna skrílsláta í Kringlunni í dag. mbl.is/Július

Lögregla höfuðborgarsvæðisins var kölluð til vegna skrílsláta og óróa í verslanamiðstöðinni Kringlunni um klukkan hálf þrjú í dag. Varðstjóri lögreglunnar sagði að öryggisverðir hafi beðið um aðstoð vegna hópamyndana og skrílsláta.

Um klukkutíma síðar voru tveir 14 ára drengir  handteknir vegna skrílsláta í Kringlunni og voru foreldrar þeirra látnir sækja þá á lögreglustöð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert