Flugvél fauk fjórðung úr hring á stæði

Vél frá Heimsferðum snérist í vindhviðu á stæði sínu í …
Vél frá Heimsferðum snérist í vindhviðu á stæði sínu í Keflavík. Árvakur/Ásdís

Boeing-737 flugvél snérist fjórðung úr hring í snarpri vindhviðu þar sem hún stóð á stæði upp við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi. Vélin er í eigu flugfélagsins JetX og var nýkomin frá Salzburg fyrir Primera Air um kl. 18.45 er hún snérist,  þegar aka átti landgöngubrú upp að henni en hálka hafði myndast á flugvélastæðinu.

Samkvæmt vefsíðu Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli var óskað var eftir aðstoð þar sem afgreiðsluaðili treysti sér ekki til þess að snúa vélinni aftur vegna vinds.

Flugvallarþjónustudeild Keflavíkurflugvallar hreinsaði snjó og bar sand á flughlaðið svo hægt væri að ná farþegum frá borði. Slökkvilið myndaði skjól með slökkvibifreiðum upp við vélina og farþegar voru leiddir inn í flugstöðina um farangursflokkunarsal á fyrstu hæð.

Samkvæmt Flugmálastjórn gekk landgangan vel og voru allir 169 farþegarnir og 7 mann áhöfn komin frá borði um kl. 20. Miklar vindhviður voru á flugvellinum og snérist flugvélin enn frekar skömmu eftir að farþegar fóru frá borði og vísaði þá þvert á landganginn. Er færi gafst var flugvélinni snúið og hún flutt á hentugra stæði. Ekkert tjón virtist hafa hlotist af.

Fram kom hjá farþegum og áhöfn að flugvélin hafi snúist rólega þar sem enginn af farþegum og flugfreyjum varð var við að flugvélin snérist.

Millilandaflug var með eðlilegum hætti á Keflavíkurflugvelli í morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert