Greiða sekt vegna samráðs

Matvara
Matvara

Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu hafa fallist á að greiða 3,5 milljón króna í stjórnvaldssekt vegna brota á samkeppnislögum vegna aðgerða sem gripið var til áður en lækkun á virðisaukaskatti á matvælum tók gildi þann 1. mars 2007. Greiða Samtök iðnaðarins 2,5 milljón og SVÞ 1 milljón króna í sekt vegna brotanna.

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu kemur fram að Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa viðurkennt að hafa haft um það samvinnu hvernig fyrirtæki innan vébanda samtakanna stóðu að  verðbreytingum á forverðmerktum matvælum, í tengslum við lækkun á virðisaukaskatti úr 14% í 7% og afnám vörugjalda sem gildi tók þann 1. mars. 2007.

Viðurkenna bæði samtökin að á vettvangi þeirra hafi verið ákveðið hvernig standa skyldi að verðbreytingu í tengslum við þessa lækkun skatta, vegna vara sem verðmerktar eru hjá framleiðendum um leið og þeim er pakkað. Í því sambandi hafi verið ákveðið hvernig tilteknu tekjutapi yrði skipt á milli viðkomandi félagsmanna samtakanna. Hafa SI og SVÞ viðurkennt að hafa farið gegn samkeppnislögum að þessu leyti. Samtökin hafa hins vegar tekið fram að ásetningur hafi ekki staðið til þess að hindra samkeppni, einungis að skila verðlækkunum til neytenda.

Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn á framangreindum aðgerðum SI og SVÞ í framhaldi af frétt sem birtist í fjölmiðlum þann 21. febrúar 2007, en þar kom fram hvernig aðilar innan SI og SVÞ myndu sameiginlega bregðast við umræddri skattalækkun.  Birti Samkeppniseftirlitið samtökunum andmælaskjal í nóvember 2007, þar sem komist var að þeirri frumniðurstöðu að þau hefðu brotið gegn samkeppnislögum.

SI leituðu til Samkeppniseftirlitsins í kjölfar þessa og óskuðu eftir því að sátt yrði gerð í málinu. Leiddu viðræður til þess að sátt var gerð við samtökin 16. janúar 2008. Í sáttinni felst að SI fallast á að hafa brotið gegn 12., sbr. 10. gr. samkeppnislaga, og fallast á að greiða 2,5 milljónir kr. í stjórnvaldssekt vegna brotsins. SVÞ skiluðu athugasemdum við andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins þann 17. desember sl. Þann 28. janúar óskuðu samtökin hins vegar eftir því að sátt yrði gerð í málinu. Leiddu viðræður til þess að sátt var gerð við SVÞ 4. febrúar 2008. Í sáttinni felst að SVÞ fallast á að hafa brotið gegn 12., sbr. 10. gr. samkeppnislaga og fallast á að greiða 1 milljón kr. í stjórnvaldssekt vegna þessa brots, að því er segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Í tilkynningu frá SI kemur fram að samtökin leituðu til Samkeppniseftirlitsins í kjölfar þess að þeim var sent andmælaskjal og óskuðu eftir því að sátt yrði gerð í málinu. Leiddu viðræður til þess að sátt var gerð við samtökin 16. janúar 2008.

„Málavextir eru þeir að Samtök iðnaðarins (SI) beittu sér fyrir því að tryggja að lækkun virðisaukaskatts og vörugjalda á matvæli þann 1. mars 2007 skilaði sér frá fyrsta degi til neytenda. Því var gripið til samstilltra aðgerða milli framleiðenda og verslana um að setja kjöt og osta, sem eru verðmerkt hjá framleiðendum, í verslanir frá og með 20. febrúar með lægri sköttum, þrátt fyrir að þurfa að standa ríkissjóði skil á hærri sköttum af sömu vörum til 1. mars. ," að því er segir í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins.

SI umbunað fyrir að stíga fram og játa brot

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu kemur fram að við mat á fjárhæð sekta var m.a. horft til þess að brotin voru framin á stuttu tímabili. Jafnframt var horft til þess að SI og SVÞ óskuðu eftir sáttarviðræðum og hafa undanbragðslaust játað brot á samkeppnislögum.

„Með þessum aðgerðum sínum hafa samtökin auðveldað og stytt rannsókn og málsmeðferð samkeppnisyfirvalda sem hefur jákvæð samkeppnisleg áhrif. Litið er einnig til þess að bæði samtökin hafa í málinu upplýst að þau muni setja sér reglur sem tryggi að samstarf félagsmanna innan þessara samtaka verði ávallt samþýðanlegt samkeppnislögum. Hafa samtökin og fallist á að hlíta fyrirmælum sem eru til þess fallin að efla samkeppni. Hafa SI og SVÞ fallist á að tryggja að innan samtakanna verði ekki fjallað um eða miðlað upplýsingum um verð, verðþróun, viðskiptakjör og önnur viðkvæm viðskiptaleg eða samkeppnisleg málefni með þeim hætti sem dregið getur úr viðskiptalegu sjálfstæði félagsmanna og raskað samkeppni.

SI er sérstaklega umbunað fyrir að stíga fyrst fram og játa þátttöku sína í broti á samkeppnislögum. Er almennt séð mikilvægt að fyrirtæki eða samtök sem hafa frumkvæði að því að játa slík brot eða upplýsa um þau njóti sérstakrar lækkunar á sektum. Ber í þessu máli að hafa í huga að velta SI er mun meiri en velta SVÞ. Er það ástæða þess að sekt SI er hærri en sekt SVÞ," samkvæmt tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins

Sátt Samtaka iðnaðarins og Samkeppniseftirlitsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert