Sérsveitarmenn fylgja ráðherra í ferð til Afganistans

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. mbl.is/Frikki

Fimm íslenskir sérsveitarmenn fylgja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra, sem heldur á næstunni í heimsókn til Afganistans, á ferðum hennar þar í landi. Þetta staðfestir Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins. Sérsveitarmennirnir eru þegar komnir til Afganistans til að undirbúa öryggisgæslu vegna fyrirhugaðrar ferðar ráðherrans.

Urður segir það venju þegar háttsettir ráðamenn halda til Afganistans að ríki viðkomandi sjái um að útvega lífverði. NATO krefjist þess að lífvarsla sé til staðar í ferð sem þessari. Það þyki sjálfsagt mál hjá öðrum þjóðum að senda lífverði með háttsettu fólki og utanríkisráðherra falli þar undir.

Hún segir nauðsynlegt fyrir sérsveitarmennina að kynna sér aðstæður í Afganistan, enda verði farið á marga staði meðan á ferð ráðherrans stendur.

Hafa reynslu

Urður segir íslensku sérsveitarmennina hafa reynslu af gæsluverkefnum sem þessum. „Sérsveitin hefur meðal annars gert þetta á leiðtogafundi NATO sem var haldinn [hér] í fyrra,“ segir hún.

Utanríkisráðuneytið vill af öryggisástæðum ekki veita frekari upplýsingar um ferð ráðherrans til Afganistans. „Við viljum fara varlega í að ræða einstök efnisatriði ferðarinnar þar til nær dregur,“ segir Urður.

Norðmaður lést í árás í janúar

Í janúar á þessu ári lést norskur blaðamaður þegar árás var gerð á hótel í Kabúl, höfuðborg Afganistans, en Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, dvaldist þá á hótelinu meðan á heimsókn hans til Afganistans stóð. Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lét þau orð falla skömmu eftir árásina að hún hefði beinst sérstaklega að norska utanríkisráðherranum. Talsmaður SÞ í Afganistan sagði hins vegar eftir árásina að ekkert benti til þess að árásarmennirnir hefðu vitað að Störe var á hótelinu. Störe flýtti heimför sinni eftir atvikið.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert