Erill en stórslysalaust

Lögreglan
Lögreglan mbl.is/Júlíus

Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en án stórslysa. Mikið var af fólki í miðborginni og talsverð ölvun. Alls gistu níu fangageymslur lögreglunnar en flestir þeirra voru að sofa úr sér vímu. Eitthvað var um pústra en engin alvarleg líkamsárásarmál komu upp. Tveir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert