31 kærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í mars

mbl.is/Júlíus

Lögreglan á Suðurnesjum tók fjóra ökumenn í gærdag, grunaða um að aka undir áhrifum fíkniefna, og í nótt tók lögreglan fimm menn til viðbótar, grunaða um samskonar brot. Af þeim voru tveir einnig kærðir fyrir ölvun við akstur.

Það sem af er marsmánuði hafa 31 ökumenn verið kærðir á Suðurnesjum fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert