Alvarlegt umferðarslys

Alvarlegt umferðaróhapp varð á Eyrarbakkavegi klukkan hálftólf í dag.
Alvarlegt umferðaróhapp varð á Eyrarbakkavegi klukkan hálftólf í dag. mbl.is/Soffía Sigurðardóttir

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur að Selfossi að sækja mikið slasaðan mann eftir alvarlegt umferðaróhapp. Að sögn lögreglunnar á Selfossi skullu saman jepplingur og vörubíll á Eyrarbakkavegi klukkan hálf tólf.

Talið er að ökumaður jepplingsins hafi verið einn í bílnum en nákvæmar upplýsingar höfðu ekki borist. Ökumaður jepplingsins festist í flakinu og þurfti að beita klippum til að ná honum út. 

Slysið varð um 2 til 3 km frá Selfossi á móts við bæinn Sandvík. 

mbl.is/Júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert