Eldur í Turninum í Kópavogi

Slökkvilið við Turninn í kvöld.
Slökkvilið við Turninn í kvöld. mbl.is/Þráinn Bj Farestveit

Tilkynnt var um eld í Turninum við Smáratorg í Kópavogi laust fyrir klukkan tíu í kvöld. Eldurinn kviknaði á annarri hæð og leggur mikinn reyk frá honum.

Fólk var í húsinu, bæði á veitingastað á 19. hæð og líkamsræktarstöð á 12. hæð, en húsið hefur verið rýmt. Ekki var alveg ljóst hversu margt fólk var í húsinu, samkvæmt upplýsingum lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert