Suðurlandsvegur enn lokaður

Suðurlandsvegur er enn lokaður eftir alvarlegt umferðarslys á gatnamótum Hvammsvegar milli Hveragerðis og Selfoss. Slysið, sem varð á áttunda tímanum í morgun, varð með þeim hætti að pallbíll og vörubifreið sem komu úr gagnstæðri átt, lentu saman og kastaðist pallbíllinn á fólksbifreið sem var á eftir vörubifreiðinni.

Tveir voru fluttir á sjúkrahús með þyrlu, ökumaður fólksbílsins sem er alvarlega slasaður, og ökumaður pallbíls sem er minna slasaður, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

Vonast er til þess að hægt verði að opna veginn að nýju um ellefuleytið en ökumönnum er bent á hjáleið um Ölfus og Þrengsli. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert