Lögregluumdæmi stækki

mbl.is/Kristinn

Nefnd, sem skilað hefur áfangaskýrslu um  mat á breytingum á nýskipan lögreglu, kemst að þeirri niðurstöðu, að breytingarnar hafi gengið vel og ekki valdið röskun á löggæslu. Almennt hafi sveigjanleiki aukist og áherslur í löggæslu breyst en til greina komi að stækka lögregluumdæmin meira til að auka slagkraft lögregluliða.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti skýrsluna á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Dómsmálaráðuneytið segir, að meginmarkmið með nýskipan lögreglumála, sem tók gildi 1. janúar 2007, hafi verð að efla löggæslu í landinu með því að auka sýnileika lögreglu, auka gæði og hraða rannsóknum mála. Í áfangaskýrslunni sé leitast við að leggja hlutlægt mat á áhrif breytinganna. Byggt sé á tölfræðilegum gögnum um skipulag og framkvæmd löggæslu á árinu 2007 og brugðið mælistiku á kostnað og útgjöld, sem hafa aukist jafnt og þétt hin síðari ár.

Nefndin telur m.a. tímabært að huga að heildarendurskoðun lögreglulaga, þar sem lögð verði áhersla á að skilgreina hlutverk lögreglu, inntak og mörk lögregluvalds, valdbeitingarheimildir og rannsóknarheimildir lögreglu, varalið og forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu, það er öryggis- og greiningarþjónustu.

Þá telja nefndarmenn að breytingin hinn 1. janúar 2007 hafi ekki verið nægilega róttæk til að tryggja bestu nýtingu mannafla innan lögreglunnar alls staðar á landinu. Sum lögreglulið séu mjög fámenn, hlutfall stjórnenda sé í velflestum liðum hátt og markmið um sérstakar rannsóknardeildir hafi ekki fyllilega gengið eftir.

Nefndin telur að meiri stækkun lögregluembætta geti enn aukið slagkraft lögregluliða til að markmiðunum, sem sett voru með breytingunum 1. janúar 2007, verði náð. Þá bendir nefndin á, að endurskoða þurfi inntak starfsstiga, samkvæmt ákvæðum reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar, svo að skilgreiningin endurspegli raunverulega verkaskiptingu. 

Nefndin telur óhjákvæmilegt, að lögreglustjórum verði gert kleift að sinna eingöngu lögreglustjórn og huga beri að því, hvort leggja eigi lögfræðimenntun lögreglustjóra til jafns við stjórnunarreynslu innan lögreglu og stjórnunarmenntun við val á lögreglustjórum. Þá telur nefndin jafnframt, að stjórnendur eigi að sjá til þess að menntaðir lögreglumenn sinni eingöngu störfum sem falla undir eiginleg löggæslustörf og starfsfólk með annars konar menntun sinni öðrum störfum hjá lögregluembættum.

Nefndin mælir með því að aukin áhersla verði lögð á að umbuna einstökum lögreglumönnum vegna árangurs í starfi og persónulegra eiginleika frekar en hækka þá um starfsstig. Þá mælir nefndin einnig með því, að hugað verði að nýrri skipan lögreglurannsókna. Hinar sérstöku rannsóknardeildir, sem ætlað sé að þjóna öðrum umdæmum, verði lagðar niður og rannsóknarstörf lögreglu verði færð í fyrra horf og undir stjórn lögreglustjóra innan hvers umdæmis. Slíkt útiloki þó ekki að sérhæfing myndist í einstökum umdæmum, í samræmi við markmið breytinganna.

Nefndina skipa Þórunn J. Hafstein, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneyti, formaður, Sigríður Björk Guðjónsdóttir aðstoðarríkislögreglustjóri, tilnefnd af Lögreglustjórafélagi Íslands, og Sveinn I. Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, tilnefndur af landssambandinu, en varamaður hans er Steinar Adolfsson framkvæmdastjóri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert