Geðveikt kaffihús hjá Hugarafli

Hugarafl.
Hugarafl. mbl.is/Kristinn

Hugarafl, samtök fólks með geðraskanir en eru í bata, í samvinnu við List án landmæra héldu „geðveikt“ kaffihús í Kaffi Rót að Hafnarstræti 17 í dag. Viðburðurinn mun standa til kl. 17.

Um er að ræða árlegan viðburð og er þetta í þriðja sinn sem hann fer fram. Boðið er upp á skemmtiatriði og „geðveikan bakstur“. „Markmiðið með þessu „geðveika“ kaffihúsi er minnka fordóma gegn geðsjúkum með sýnileika" segir Þórey Guðmundsdóttir, meðlimur í Hugarafli.

Heimasíðu Hugarafls má finna hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert