Abbas kominn til landsins

Flugvél Abbas á Keflavíkurflugvelli í nótt.
Flugvél Abbas á Keflavíkurflugvelli í nótt. mynd/Víkurfréttir

Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, lenti á Keflavíkurflugvelli skömmu eftir miðnætti í nótt, en hann mun funda með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í fyrramálið og snæða hádegisverð á Bessastöðum.  Síðdegis mun hann eiga fund með Ingibjörg Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra.

Abbas er á leið til Bandaríkjanna til fundar við George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, í Washington, að því er fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert