Lýst eftir stúlku

Eva Lind Guðjónsdóttir.
Eva Lind Guðjónsdóttir.

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir 13 ára stúlku, Evu Lind Guðjónsdóttur,  til heimilis að Fjörubraut 1230, Reykjanesbæ, en hennar er saknað síðan á mánudaginn 28. apríl.  Ekki er vitað hvar hún er niðurkomin en talið er að hún sé á höfuðborgarsvæðinu.

Eva Lind er 160 sm há, grannvaxin með sítt dökkt hár sem hún tekur yfirleitt upp í hnakkann. Hún var gallabuxum, svartri úlpu og í svörtum skóm.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir stúlkunnar frá s.l. mánudag eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka