Vöruverð í lágvöruverslunum hækkar um 5-7%

Verð hefur hækkað í Bónus um rúm 7% að sögn …
Verð hefur hækkað í Bónus um rúm 7% að sögn ASÍ.

Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði um 5-7% í lágvöruverðsverslununum milli 2. og 4. vikunnar í apríl. Mest hækkaði verð vörukörfunnar í Bónus um 7,1%, í Nettó nam hækkunin 6,6%, í Kaskó 5,7% og í Krónunni 5,4%.

ASÍ segir, að mun minni breytingar hafa orðið á verði vörukörfunnar í öðrum verslunarkeðjum en þar hækkaði karfan um 0,5-1% á sama tímabili.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem endurspeglað getur almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur eins og t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara.

ASÍ segir, að við samsetningu vörukörfunnar hafi verið hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vístölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Verðbreytingar eru skoðaðar í lávöruverðsverslununum Bónus, Krónunni, Nettó og Kaskó, almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrval og klukkubúðunum 10-11, 11-11 og Samkaupum-Strax.

Verðkönnun ASÍ

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert