Ljósið í myrkrinu

Áframhaldandi rekstur meðferðardeildar í fangelsinu á Litla-Hrauni hefur verið tryggður með fjárveitingu, samkvæmt heimildum fréttastofu, en fangar sem eru vistaðir þar sjá deildina sem ljósið í myrkrinu. Um 6 mánaða tilraunaverkefni var að ræða og hefði deildinni verið lokað um næstu mánaðamót hefði fjárveitingin ekki fengist.

Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins, segir meðferðardeildina afar mikilvæga og hafa sannað sig á þeim stutta tíma sem hún hefur starfað. Hún segir fjölda fanga hafa mikinn áhuga á að komast í virka jákvæða endurhæfingu.

Aðrar helstu fréttir í sjónvarpi mbl:

  • Bankarán í Hafnarfirði: ræningja leitað í hrauninu
  • Náttúruhamfarir í Búrma: söfnun hafin
  • Borgarstjórinn ósamkvæmur sjálfum sér?
  • Enn óljós staða hjá Demókrötum í Bandaríkjunum
  • Íbúar fluttir á brott vegna öskugoss í Chile
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert