Vilja auka norræna menningarsamvinnu

Britt Lundberg frá Álandi, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Brian Mikkelsen frá …
Britt Lundberg frá Álandi, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Brian Mikkelsen frá Danmörku, Lena Adelsohn Liljeroth frá Svíþjóð, Trond Giske frá Noregi, Laine Jänes frá Eistlandi, Stefan Wallin frá Finnlandi og Kristina Háfoss frá Færeyjum. Ljósmynd Marianne Andersson

Menningarmálaráðherrar Norðurlandanna vilja stefna að því að norræn menningarsamvinna verði meira áberandi en nú er í hinni alþjóðlegu samkeppni í tengslum við velferðarmál, gildi og atvinnumál. Ráðherrarnir eru á einu máli um að menning og listir eigi að verða snar þáttur í að efla samkeppnishæfni Norðurlanda og gera þau sýnilegri á alþjóðavettvangi.

„Það er mikilvægt að halda norrænni menningu á lofti í alþjóðlegu umhverfi og við hlökkum til að taka virkan þátt í því starfi sem forsætisráðherrarnir lögðu grunninn að á fundi sínum sem haldinn var á Riksgränsen í Svíþjóð í apríl. Sú vinna hvetur okkur til að marka sameiginlega framtíðarstefnu í menningarmálum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ráðherra menningarmála, í tilkynningu.

Fyrsta skrefið í aðgerðum menningarmálaráðherranna er að leita eftir samstarfi við viðskipta- og atvinnumálaráðherra landanna og leggja fyrir þá tillögur um sameiginlegar aðgerðir til að efla skapandi iðnað. Norræna tölvuleikjaáætlunin, sem menningarmálaráðherrarnir höfðu frumkvæði að, hefur gefið góða raun og norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn hefur styrkt stoðir iðnaðarins. Nú á að efla starfsemina enn frekar og nýta betur til að markaðssetja Norðurlöndin sem skapandi vettvang.

„Það er ljóst að listsköpun, nýþróun og skapandi atvinnugreinar hafa vaxandi þýðingu á alþjóðlegum samkeppnismörkuðum og Norðurlöndin ættu að hafa mikla möguleika á að verða þar í fremstu röð. Löndin njóta nú þegar mikils álits um víða veröld á sviði hönnunar, tónlistar, bókmennta, kvikmyndalistar og sjónvarps. Þetta vekur nýjar hugmyndir í tengslum við sameiginlega markaðssetningu á norrænu efni,“ segir Þorgerður Katrín ennfremur.

Annar meginþátturinn í áherslum menningarmálaráðherranna er að efla samskipti ólíkra menningarheima. Ráðherrarnir vilja meðal annars styrkja hina norrænu hefð fyrir umfjöllun um menningarmál og lýðræðislega umræðu. Markmiðið er að ýta undir þróun á menningar- og atvinnulífi með auknum menningarsamskiptum milli svæða og landa.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert