Sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Maldíveyjum
Dr. Gunnar Pálsson, sendiherra, afhenti Maumoon Abdul Gayoom, forseta Maldíveyja, trúnaðarbréf sitt þann 8. maí sem sendiherra Íslands gagnvart Maldíveyjum með aðsetur í Nýju Delí.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytingu segir að í tengslum við athöfnina, sem fram fór í Malé, var m.a. rætt um tvíhliða samskipti ríkjanna, þ.á m. í loftlags- og sjávarútvegsmálum og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Þá kemur fram að sendiherra átti fundi með utanríkisráðherra Maldíveyja, Abdulla Shahid, varautanríkisráðherra, Dunya Maumoon og umhverfis- og orkumálaráðherra, Ahmed Abdullah, auk háttsettra embættismanna í utanríkisráðuneytinu. Á fundunum var m.a. fjallað um þær afgerandi breytingar sem nú eiga sér stað í stjórnmálalífi Maldíveyja, en fyrstu lýðfrjálsu kosningarnar í landinu standa fyrir dyrum með haustinu.
Á meðan á heimsókninni stóð notaði sendiherrann tækifærið til að afhenda nýjum kjörræðismanni Íslands á Maldíveyjum, Ibrahim Mohamed Didi, skipunarbréf íslenskra stjórnvalda. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Maldíveyjum.
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 5. desember 2007, Innlent Nýr sendiherra Frakka talar íslensku
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent Forsetinn sendir Indverjum samúðarkveðjur
- Miðvikudagur, 17. september 2008, Innlent Sigríður Anna afhendir trúnaðarbréf í Kanada
- Mánudagur, 25. ágúst 2008, Innlent Sigríður Dúna afhendir trúnaðarbréf
- Mánudagur, 11. júní 2007, Innlent Afhenti páfa trúnaðarbréf
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































