Útskrifaðir af gjörgæsludeild

Tveir menn sem misstu meðvitund á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt eru á batavegi, samkvæmt upplýsingum læknis.

Mennirnir voru lagðir inn á gjörgæsludeild í morgun en útskrifaðir þaðan í dag. Þeir eru þó enn á sjúkrahúsi. Talið er að mennirnir hafi innbyrt eitthvað sem leiddi til þess að þeir hnigu niður.  Ekki er þó enn vitað hvað það var sem mennirnir létu ofan í sig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert