Snjóflóðavarnir koma í veg fyrir íbúafækkun

Á þessari mynd má sjá útlínur varnargarðsins og þess svæðis …
Á þessari mynd má sjá útlínur varnargarðsins og þess svæðis sem rætt er um sem efnistökusvæði. Einnig má sjá á myndinni farveg þeirra flóða sem heimildir eru fyrir á þessu svæði. Myndin er unnin af Oddi Jónssyni en loftmyndin er frá Loftmyndum ehf. mynd/bb.is

Framkvæmdir við byggingu snjóflóðavarnargarðs ofan Holtahverfis á Ísafirði ættu ekki að hafa áhrif á íbúafjölda en verði hins vegar ekki af byggingu snjóflóðavarna og farið þess í stað í að kaupa upp hús á hættusvæðum mun íbúum fækka.

Þetta kemur fram í frummatsskýrslu Tækniþjónustu Vestfjarða sem send hefur verið bæjaryfirvöldum til kynningar. Snjóflóðavarnir gætu haft áhrif á verðgildi íbúða næst varnargarðinum á meðan framkvæmdum stendur, en ólíklegt er að þær valdi varanlegri verðlækkun. Íbúar þeirra húsa sem næst standa framkvæmdasvæðinu munu verða fyrir töluverðu ónæði vegna hávaða og rykmengunar frá vinnuvélum. Vinnusvæðið verður allt afmarkað og svæðið næst byggðinni girt af.

Samkvæmt hættumati sem unnið var árið 2005 er talið hagkvæmast að byggja þvergarð fyrir ofan fjölbýlishúsin við Stórholt og upptakastoðvirki í Bröttuhlíð í fjallinu Kubba. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert