Fyrsta fjórfætta fórnarlambið

Ekkert umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglunnar á Seyðisfirði í vikunni, utan tilkynningu um að ekið hefði verið á kind á Borgarfjarðarvegi.  Hlýtur kindin þann vafasama heiður að vera fyrsta fjórfætta fórnarlambið, í nánast orðsins fyllstu merkingu, á þjóðvegum í umdæminu þetta sumarið.

Þetta kemur fram í frétt á Lögregluvefnum.

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur, tveir til viðbótar voru kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot. Fjórar bifreiðar voru boðaðar í skoðun og skráningarnúmer klippt af þremur bifreiðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert