Erill hjá lögreglunni í Borgarnesi

mbl.is/Július

Erill var hjá lögreglunni í Borgarnesi í nótt og að sögn lögreglu var mikið um ölvun.  Einn gisti fangageymslur vegna rúðubrota og mikillar ölvunar á almannafæri. 

Þá varð umferðaróhapp þegar ökumaður grunaður um ölvunarakstur, keyrði útaf vegi fyrir utan bæinn.  Að sögn lögreglu var um minniháttar meiðsl að ræða.  Annar ökumaður var stöðvaður innanbæjar grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert