Verkföll geta truflað ferðir tugþúsunda
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is
Boðuð verkföll flugumferðarstjóra hefjast að öllu óbreyttu á föstudaginn. Fyrsta verkfallið af tuttugu hefst á föstudagsmorguninn klukkan sjö og stendur til klukkan ellefu. Næsta verkfall verður klukkan sjö til ellefu næsta mánudagsmorgun og svo koll af kolli að morgni dags til 20. júlí, takist ekki samningar. Ljóst er að verkföllin kunna að hafa röskun í för með sér fyrir tugþúsundir flugfarþega til og frá landinu og í innanlandsflugi.
Á þessum tíma árs eru brottfarir í millilandaflugi frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli á tímabilinu frá 07:00 til 11:00 um tuttugu talsins. Miðað við að aðeins átta flugvélum verður heimilt flugtak á þessu tímabili er augljóst að mikil röskun verður á áætlun flugvéla frá landinu. Þessi röskun mun magnast þegar verkföllin skella á dag eftir dag. Allt innanlandsflug leggst niður á verkfallstímanum.
„Við treystum því að deiluaðilar leysi ágreining sinn og að ekki komi til boðaðs verkfalls. Icelandair er ekki aðili að þessari deilu, við getum ekki haft nein áhrif á gang viðræðna og því ekki tekið neina ábyrgð á gerðum þeirra sem eiga í deilunni heldur,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Hann segir það auðvitað óviðunandi fyrir almenning, viðskiptavini, starfsmenn og fyrirtækið sjálft, sem ekki eiga neinn þátt í málinu, að svona skuli komið.
„Við erum að byrja að fá fyrirspurnir frá viðskiptavinum um hvað gerist, en við getum ekki veitt svör við því. Frá sjónarhóli flugfélags er hér um að ræða hugsanlegar truflanir á áætlun og seinkanir, utanaðkomandi óviðráðanlegar aðstæður, sem við tökum á þegar og ef til þess kemur. En við getum því miður ekki ráðlagt fólki eitt eða neitt í þessu sambandi – við sjálf hjá Icelandair trúum ekki öðru en að úr leysist,“ segir Birkir.
Bloggað um fréttina
-
Þórir Kjartansson Aumingja greyin -
Haraldur Bjarnason Hverju berjast þeir fyrir?
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 26. júní 2008, Innlent Ekkert flogið innanlands í fjóra klukkutíma
- Föstudagur, 27. júní 2008, Innlent Búið að semja
- Mánudagur, 23. júní 2008, Innlent Mikil röskun á flugi
- Þriðjudagur, 16. september 2008, Innlent Verkföll skerða þjónustu mikið
- Föstudagur, 27. júní 2008, Innlent Verkfall flugmferðarstjóra hafið
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































