Loftferðasamningur gerður við Mexíkó

Búið er að árita loftferðasamning milli Íslands og Mexíkó. Samningurinn er fyrsti loftferðasamningur sem gerður er á milli ríkjanna og mun taka gildi við undirritun. Segir utanríkisráðuneytið, að loftferðasamningur við Mexíkó styrki möguleika íslenskra flugrekenda sem hafi sinnt og vilji sinna verkefnum í þessum heimshluta.

Samninginn árituðu Benedikt Jónsson, sendiherra fyrir Íslands hönd og Gilberto López Meyer, flugmálastjóri Mexíkó fyrir hönd Mexíkó. Í samninganefnd Íslands voru auk Benedikts þau Ástríður Scheving Thorsteinsson, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu og Lena Magnúsdóttir, skrifstofustjóri Loftleiða-Icelandic.

Í samningnum felast grunn flugréttindi fyrir flugrekendur ríkjanna til áætlunarflugs til og frá ríki hvors annars. Samningurinn tekur til áætlunarflugs milli ríkjanna án takmarkana á fjölda áfangastaða, flutningsmagni og tíðni. Samningurinn tekur til flugs til viðkomustaða handan áfangastaða í Mexíkó og á Íslandi að fengnu sérstöku samþykki flugmálayfirvalda beggja ríkjanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert